Hæhæ… ég er alveg ráðalaus núna og væri alveg til í að fá einhver sniðug svör frá fólki sem hefur kannski lent í einhverju svipuðu…
Það er sko þannig að ég er með strák, sem er tveim árum eldri en ég (15 ára) og við erum búin að vera lengi saman og allt gengur bara rosa vel nema eitt… Áður en hann byrjaði með mér, þá var hann með annari stelpu en dömpaði henni afþví að hún var orðin svo leiðinleg og var farin að kyssa aðra stráka og svoleiðis, þetta gekk heldur aldrei upp hjá þeim þannig að hann nennti þessu ekki lengur! Eftir að hann byrjaði svo með mér hefur hún ekkert talað neitt við hann og hann evar nú bara feginn…

En núna er hún alveg byrjuð að OFSÆKJA hann… sendir honum SMS og á hverjum degi og spyr hvort að hann vilji virkilega einhverja “litla og óþroskaða” stelpu, frekar en hana og hún er alltaf að hringja í hann og lætur hann bara ekki í friði! Okkur finnst þetta báðum pirrandi, og hann þolir þetta ekki… og hefur oft talað við hana og bara beðið hana um að láta sig vera því hann hafi ekki neinn áhuga og muni aldrei hafa- en hún getur ekki skilið það og heldur alltaf áfram!

Núna er hún hins vegar farin að láta mig ekki í friði… hún er alltaf að senda sms af netinu og oft að senda og þykjast vera kærastinn og segir “ég er hættur með þér því þú ert ömurleg tussa” og einu sinni þá kom hún í skólann til mín og kastaði í mig poka með vatni og einhverju ógeði og er líka farin að hringja og er bara alveg ÓÞOLANDI!!!

Ég er alveg búin að fá nóg af þessu og kærastinn líka því þetta er ógeðslega pirrandi, þannig að ég verð að fá ráð ef einhver getur gefið mér þau!