Hæhæ
Ég er með eitt ofboðslega stórt vandarmál sem er ekkert nema mér að kenna og ég er að deyja innan í mér akkúrat núna.

Málið er að ég á kærasta sem ég er búin að vera með í svona þrjá mánuði, fyrir u.þ.b 1 mánuði þá svaf ég hjá honum í fyrsta skiptið (þetta var fyrsta skiptið mitt) mér þykir alveg ofboðslega vænt um þennan strák og mér finnst eins og ég er heppnasta manneskja í heimi að hafa hann. En hann á heima dáldið langt frá mér og ég var hvorki búin að heyra neitt í honum eða sjá hann síðan fyrir áramót og ég var búin að hringja í hann og senda honum sms en hann svaraði aldrei, ég var orðin geðveikt sár og ég hélt að hann hafi kannski kynnst einhverri aðrari stelpu á gamlárskvöldinu eða ekkað þannig. Svo í fyrir viku kynntist ég gaur sem að mér fannst alveg æðislega skemmtilegur og ég vissi að hann var að leita sér að kærustu en ég auðvitað vildi hann ekkert því að ég átti kærasta. En að ekkerji ástæðu fór ég ekkað að hitta hann og ég vissi að hann vildi ekki bara vera vinur minn svo alltíeinu einn daginn kyssti hann mig og ég veit ekki hvað gerðist, ég þorði ekki að ýta honum í burtu eða neitt því að ég vildi ekki særa hann og ég hélt að það myndi vera svo vandræðalegt þannig að ég endaði með því að sofa hjá honum!!! Ég vissi ekki að ég væri svona manneskja!! Mér líður ógeðslega illa! Og til að toppa þetta þá hringdi loksins kærasti minn þegar ég kom heim frá hinum stráknum og var að byðjast afsökunnar á að hafa ekki hringt eða neitt (það voru ekker fjölskylduvandamál hjá honum) nú veit ég ekkert hvað ég á að gera!! Ég veit að ég verð að segja kærastanum mínum þetta en ég er 100% viss um að hann á eftir að dömpa mér, mér myndi líða svo ógeðselga illa hefði hann gert þetta við mig!
Plús strákurinn sem ég svaf hjá veit ekki að ég á kærasta og hann er orðinn geðveikt hrifinn af mér og heldur að ég sé kærasta hans!! Ég vill ekki særa þá, ég vill alls ekki særa þá!! Ég veit ekki hvað ég á að gera, auðvitað veit ég að það er rökrétt að ræða við hinn stákinn og segja honum frá kærastanum og ræða við kærastann og segja honum frá hinum stráknum en ég þori því ekki!!

Ég á það skilið að enda uppi með engan kærasta eftir það sem ég gerði!! Viljiði plz gefa mér ekker góð ráð og ekki vera með ekker skítköst og fáranleg svör að kalla mig hóru og ekkað því að ég veit sjálf að ég er ógeðsleg hóra og á ekki skilið að lifa eftir það sem ég gerði!