Ok sko eg er með þessum frábæra gæja sem allir DÝRKA bara sko…. en við höfum ALLTAF verið bestu vinir þa meina eg sko bara allra bestu eg hef alltaf sagt honum allt og solleiðis en svo fór ég að finna fyrir að eg var e-ð að verða svolítið veik fyrir honum og eg var búin að frétta að hann væri bara að DREPAST úr ást yfir mér og hefur verið það lengi meira að segja þegar ég var með besta vini hanns. En allavegna nuna erum við saman og buin að vera saman svolítið lengi. Hann er alltaf ótrúlega góður við mig og allt en svo fór ég að finna fyrir einhverjum tilfinningum hja öðrum strák og kærasti minn komst að þvi. Við töluðum um þetta lengi og loksins sættumst við og þetta var allt í lagi. En nuna vil ég ekki vera í sambandi lengur en eg vil heldur ekki segja honum upp þvi ég er svo hrædd um að missa besta vin minn. [ eg er nu eiginlega buin að missa hann þvi eg er farin að hata gaurinn] samt hefur hann ekkert breist og allir elskann. Ég bara veit ekkert hvað ég á að gera ef eg dömmpa honum missi eg örugglega allt samband við hann og vini hanns (sem eru líka bestu vinir mínir) ekki spyrja afhverju þeir eru bara þannig. hvað á ég að gera ? ég vil ALLS ekki dömmpa honum en ekki heldur vera í sambandi. ?? Hjálp…