Hæhæ.

Ég er með eitt rosa stórt vandamál… sem eiginlega tengist mér ekki neitt, heldur bestu vinkonu minni. Ég segi að þetta sé mitt vandamál þó að þetta sé auðvitað mest hennar, af því að mér þykir ótrúlega vænt um þessa stelpu og mér líður illa þegar henni líður illa :/

ÞAnnig er það að hún er búin að vera með strák í 3mánuði og hann er einu ári eldri en hún, semsagt 14 ára. Þetta er alveg rosalega skemmtilegur strákur og hann er líka vinsæll.

Ég veit að þau eru búin að sofa saman, nokkrum sinnum og mér finnst það líka allt í lagi, því vinkonu minni finnst hann svo æðislegur að hún var alveg tilbúin til að fórna meydóminum fyrir hann. Þetta var líka fyrsta skiptið hans…

Vandamálið er að ég held að hann sé ekki nógu traustur fyrir hana.
Ég veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra það…en ég bara finn það einhverveginn.

Síðustu helgi var ég í partýi, og hann var líka þar (vinkona mín kom ekki afþví að hún var veik) og það var farið í svona allskonar leiki, mönunarleiki og þannig….
Jæja, hann var manaður til að slumma eins stelpuna þarna og hann gerði það bara án þess að hugsa sig um.
Ég var ekki alveg nógu ánægð með það, þannig að ég fór og talaði við hann. Hann sagðist bara hafa gert þetta svo að krakkarnir héldu ekki að hann væri einhver aumingi og bullaði bara upp einhverjar þvílikar afskanir.
Hann brjálaðist alveg þegar ég sagðist pottþétt eiga eftir að segja kærustunni hans (bestu vinkonu minni) frá þessu. Fyrst varð hann bara geðveikt dónalegur við mig og sagði að ég væri bara afbrýðisöm útaf ég fékk ekki að kyssa hann… en þegar hann sá að það var ekkert að virka, þá varð hann alveg eins og aumingi og ég hélt að hann ætlaði bara að fara að grenja.

Þá vorkenndi ég honum bara því ég veit alveg hvað honum þykir vænt um stelpuna, og mér fannst ég alveg sjá það á honum þó hann hefði gert þetta.

Svo sá ég hann líka í strætó um daginn þar sem hann var með stelpu sem er í hans bekk. Ég veit ekkert hvort það er eitthvað í gangi, en allavega veit ég að ef þau eru vinir (eða eitthvað meira), þá veit vinkona mín ekki af því.

Ég veit ekki hvort að ég á að segja vinkonu minni frá þessu… eða hvort að ég á að tala við hann…. ég hef reyndar einu sinni sent honum sms og spurt hvað hann var að gera með þessari stelpu í strætó, svarið sem ég fékk var að það kæmi mér ekki rassgat við og ég ætti ekki að vera að skipta mér af.

Málið er, að mér finnst þetta alveg koma mér við. En ég veit ekkert hvað ég á að gera….!!!

Hvað finnst ykkur?