wow… bara krípí það sem ég er að lenda í sko =/

hmmmm… mér var sagt frá því fyrir nokkru að stjúpmamma mín hefði verið með eldri bróður pabba míns áður en hún byrjaði með pabba mínum =/ hún á núna reyndar 2 börn með pabba mínum og það er allt gott og blessað… en finnst fólki það ekkert óþægilegt í matarboðum og ýmsu fleira þess háttar????

anyways… það sem ég lenti í…

fyrsti gaurinn sem ég byrjaði með… jámmmm… við vorum saman í einhverja 9 mánuði og eftir að við hættum saman var etta svona eins og haltu mér slepptu mér en samt ekki. Við vorum bara öryggislína hvors annars eða eitthvað þannig. Við gátum alltaf talað saman og svona og viðurkenni alveg að ég gerði alveg ýmislegt með honum þótt við værum hætt saman.

Hann á víst bróður sem er aðeins yngri en hann, en samt eldri en ég. Bróðirinn var víst eitthvað geðveikt búinn að vera checka mig eða eitthvað og var alltaf að tala um það að fá númerið hjá mér. Anyways… mér fannst það pínu sick… alveg eins og mér fannst pínu sick hvernig stjúpmamma kom fram, stökkvandi á milli bræðra.
Svo fær bróðirinn númerið hjá mér, ég spyr hann hvort honum finnist þetta ekkert skrýtið =/ og hann segist ekkert vera að plana að byrja með mér og eitthvað… ég alveg sátt við það svar…

Svo býður hann mér í keilu… ég sem er keiluaðdáandi dauðans tek því að sjálfsögðu… honum RÉTT SVO tókst að vinna mig… en svo er farið í billjard… svo er hisst bara bókstaflega á hverjum degi í heila viku… núna stend ég frammi fyrir þeirri aðstöðu að ég er orðin geðveikt hrifin af bróðurnum… en fyrrverandi er alltaf hringjandi í mig og athugandi hvort ég sé að gera eitthvað af mér með honum =/ hef ekkert gert hingað til … aðalega af því að ég hef ekki HUGMYND um hvað ég á að gera í þessu máli og hvernig ég á að snúa mér.

Er þetta ekki pínu sick að fara svona á milli bræðra???
hvað á ég að gera????
ég er bara svo fallin að það er ekki fyndið =(

plz help me !!!