Góðan dag…
Ég á í smá vandræðum sem ég var að vona að þið gætuð ráðlagt mér við. Allavega hér kemur það.
Síðasta árið hef ég unnið með stelpu sem tók strax athygli mína og þá er ég ekki bara að meina líkaman, heldur hefur hún allan pakkan. Eitt kvöldið var ég búinn að telja í mig smá kjark til að segja henni hvernig mér leið, en á meðan ég var að bíða eftir henni í partíunu þá drakk ég dálítið mikið og endaði heima hjá annari stelpu. Og við byrjuðum saman og vorum saman í 5 mánuði, og þegar ég er með stelpu þá loka ég á allar aðrar stelpur, en ég hélt áfram að hitta hana í vinnuni og við erum orðin mjög góðir vinir núna. Reyndar það góðir vinir að við erum orðin eins og systkyni:(
En eftir að ég hætti með hinni þá hefur vaknað upp aftur hrifning mín á henni, en vegna hve góðir vinir við erum núna þá veit ég bara ekki hvað ég á að gera????

Vantar ráð
Serkhet

p.s. ekki níðast á stafsetningunni