Ég veit ekki alveg hvort þetta á heima hérna á rómantík, því ekki er þetta rómantískt, frekar bara vandræði eða synd…

Þannig standa nú mál með vexti að ég byrjaði með frábæri stelpu fyrir ca. mánuði, sem ég hafði að vísu þekkt í rúmt ár, sem mér þykir frekar vænt um. Það er nú allt gott og blessað en þannig var það að hún var að fara á skóla-eitthvað með bekknum sínum í gærkvöldi og ég ákveð að skella mér í partý með nokkrum félögum.
Þegar við mætum verðum við var við að við erum þau einu sem eru ekki í jakkafötum og drögum dálítin slatta af athygli okkar leið, sem er líka bara besta mál.
Þá gerist það sem ég sé eftir. Ég spjalla þarna við nokkra kunningja og fæ mér í glas. þegar líður á kvöldið þá gerist ég það sniðugur að ég kyssi eina stelpu… svo aðra… og fer síðan inná klósett með þeirri þriðju, en verðum svo heppilega stoppuð, af öðrum partý gest sem var aðeins eldri þegar hann sér að við getum hvorug næstum staðið í lappirnar.

eftir partýið þá rölti ég heim (í leigubíl) og vonaði að ég myndi gleyma þessu þegar ég vaknaði. Það var ekki. ég er núna með ótrúlegt samviskubit og veit ekki hvað ég á að gera. Þetta er nefnilega ekki í fyrsta sinn sem eitthvað svona hefur gerst.

Ég er að fara hitta kærustuna í kvöld og veit ekki hvort ég ætti að segja henni þetta eða bara sleppa því og lifa með þetta…

Jako