ég um mig frá mér til þín hæ , það er mikil rómantík í loftinu!

ég og kærastinn erum núna búin að vera saman í næstum 10 vikur :) ég er svo hamingjusöm!!! Þetta er minn fyrsti kærasti og sá allra besti hehehe , ég alveg dýrka þennann gaur!

Ég er þessi manneskja sem tekur eftir litlum hlutum sem margir ef ekki flestir láta framhjá sér fara, og missa þar af leiðandi af sumum af bestu hlutunum við lífið sjálft.

T.d. kurr (já kurr ekki kúr) þegar ég heyri hann kurra bráðnar hjartað mitt alveg, þegar hann hlær , þegar hann horfir á mig eins og ég sé það eina sem skiptir máli.

ég er ástfangin! vonandi líður ykkur eins og ég því það væri orðið ólöglegt ef ég væri hamingjusamari ;)
Have a nice day