Ég er 16 ára strákur nýnemi í MS. Ég er hrifinn að stelpum, en….. Ég fell
oftast fyrir stelpum sem taldar eru lesbíur. Ég man eftir einni sem ég var
sérstaklega hrifinn af. Hún talaði alltaf við stelpur aldrei við stráka. Allir
vinir hennar voru stelpur. Vinir mínir og aðrir sögðu mér bara að hún væri
þokkaleg lesbía og að ég ætti ekki að reyna að koma með einhverjar
hugsanir. Hún fór í annan Menntó svo ég veit ekkert hvað gerðist við
hana. Hvernig er hægt að vita það með vissu. Án þess að spurja sem
væri soldið aulalegt. Ég vil gjarnan lesa ykkar athugasemdir. Og hvort
þetta hefur hent aðra hér.