Komið þið sæl

Nú er ég obboðslega hrifinn af vinkonu minni og ég held hún viti ekkert af því. Ég ætla samt að reyna að segja henni það bráðum, hugsanlega á árshátíð sem við förum á. Ég var bara að pæla, hvernig mynduð þið segja vinkonum ykkar og hvernig mynduð þið stelpurnar vilja láta segja ykkur að maður sé bálskotinn í ykkur?
Bara svo þið vitið það þá er ég tvítugur og hef verið lengi að leita. Satt að segja þá er þetta í fyrsta skiptið sem ég mun opna mig á þennan hátt og er svolítið búinn að velta fyrir mér hvernig ég eigi að segja henni þetta.
Ég á ábyggilega eftir að eiga í erfiðleikum með að koma þessu útúr mér en það hlýtur að hafast einhvernveginn.
Ég geri mér alveg vonir um að hún eigi eftir að taka þessu vel.
Vona að einhver svari mér. =)

Kveðja
Jolli