Jæja…þá er komið að mér

Málið er það að fyrir rúmum 3 mánuðum hætti ég með kærastanum mínum.Við áttum bókstaflega ekkert sameiginlegt og ég sá okkur ekki saman í framtíðinni.
Orsökin fyrir því að við kynntumst var sú að ég og góður vinur hans(Valur) vorum að “deita”, vorum búin að vera að sofa saman í meira en hálft ár, en við vorum aldrei kærustupar, ég var samt skotin í honum og hann mér.
Ok,Ég og Valur vorum eins og kanínur og voða gaman hjá okkur,héngum saman, horfðum á video og þannig. Þetta byrjaði allt saman hjá mér og Val um febrúar, þá kynntumst við. Þetta hélt áfram þangað til að ég fór út til Spánar um sumarið, ég var í þrjár vikur og alveg að deyja yfir því að hann væri ekki með mér, var látlaust að hugsa um hvað hann væri að gera, hvort hann væri með einhverjum öðrum stelpum og soleiðis. Við spjölluðum oft í síma ´´a meðan ég var úti, ég var úti á spáni yfir einhverja helgi sem ALLIR voru að fara í tjaldferðalag og þá varð ég alveg SVAKA hrædd um að hann myndi gera eitthvað( mér fanst ég bara eiga hann), auðvitað mátti hann alveg gera eitthvað,þið skiljið. Þessi helgi leið og ég fann á mér að hann væri að gera eitthvað því mig dreymdi það alveg svakalega mikið,(ég á það til að dreyma eitthvað sem síðan kemur fyrir eða er búið að gerast, nokkurskonar berdreymin). Mig dreymdi að hann hafi verið með nokkrum vinkonum mínum og ég skildi ekkert í þessu, hringdi ég þá í vinkonu mína og hún sagði mér að Rósa hafi kysst hann. Ok ég varð alveg brjáluð en jafnaði mig þó.;)he
Þegar ég kom heim hélt ég og Valur áfram að vera saman, ég var alltaf voðalega heit fyrir honum og það var ekkert a leiðinni að breytast. Eitt skipti eftir djamm þá fórum við heim saman, en það var í síðasta skipti, ég var einhvernvegin bara komin með nóg af þessu veseni öllu, svo fanst mér þetta vera að deyja(dont know).
Þá gerist það að vinur hans byrjar að tala við mig(Gummi), við kynnumst og verðum ágætisfélagar, og náum ágætlega saman. Eitt skipti´þegar ég var í heimsókn hjá honum þá segir hann mér að Valur hafi verið með bestu vinkonu minni um verslunarm.helgina, ég var voða hissa og í leiðinni reið, en gerði svosem ekkert í því nema það að drulla yfir þessa vinkonu mína, en ég sagði ekkert við Val. Ég og Gummi byrjuðum að deita og byrjuðum svo saman, en ég byrjaði ekki með honum af ást, í fyrstu var ég bara að leika mér því ég var ennþá að jafna mig á Val. En svo varð ég auðvitað hrifin af Gumma og við vorum saman í eittog hálft ár.
Valur hélt í fyrstu að ég væri bara að hefna mín á sér með því að vera með vini hans og hann var rosalega svekktur, var alltaf að senda mér skilaboð og var þvílíkt sorry yfir þessu. Í fyrstu var ég kanski að hefna mín á Val en svo snérist það við og ég varð alveg hrifin af Gumma.
Málið mitt er það, að Valur situr ennþá eitthvað eftir í mér og ég veit ekki hvað ég á að gera? Við tölum eiginlega ekkert saman lengur nema segjum hæ í skólanum. Mig dreymir hann liggurvið hverja einustu nóttu án þess að vilja það sjálf, ég skil þetta ekki.
Þegar ég var með Gumma, þá vorum við öll saman í partýi í kópavoginum hjá einni vinkonu minni(allar stelpurnar og strákarnir og auðvitað gummi og valur voru þarna),ég og Valur lentum á þvílíku trúnó þegar allir voru sofnaðir, við vöktum alla nóttina og töluðum saman,hann reyndi að kyssa mig, en ég hörfaði frá,þótt mig langaði ekki til að hörfa frá. Við sögðum hvort öðru hvað okkur þótti vænt um hvort annað og hann sagði mér að hann hafi gert hroðaleg mistök með því að vera með vinkonu minni,einnig sagði hann mér að hann hafi dreymt mig nokkrum sinnum(veit ekki hvað til er í því)
Við sváfum nokkur þarna í þessu partýi, ég auðvitað við hliðiná Gumma ,en svo kom Valur líka inní herbergið, svo ég sofnaði á milli þeirra beggja..afhverju fór hann ekki og svaf annarsstaðar?Langaði samt að hafa hann þarna sko;).
Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra, ég veit ekki hvað ég á að gera, ég skil ekki afhverju ég dreymi hann svona ofboðslega mikið? Mig langar að vita hvort það er eitthvað sem er ekki enn slökknað á milli okkar? Mér langar að spurja hann útí svo margt? Mér finst hann vera feiminn við mig(kanski imýndun),ég er allavega feimin…Mér langar allavega að við getum verið vinir.

Hvað er málið?

getið þið svarað því:(???