O.m.g. ég er gjörsamlega að deyja!
Sko málið er það að bara áðan, þá var ég úti með helling af fólki útaf Grafarvogsdeginum.Það voru allir búnir að drekka eitthvað og sumir orðnir frekar fullir! En málið er það að ég fór til vinkonu minnar þar sem allir voru meðal annars bróðir hennar.Við vorum þar geggt lengi og hann var alltaf að kitla mig og eitthvað þannig,og síðan var hann að kyssa alla, þ.á.m. mig.

En svo þegar við vorum að labba útí Gufunesbæ þá byrjaði þetta allt.hann hélt svona utan um mig og var alltaf káfa eitthvað á mér og kyssa mig á kinnina og ég hélt að hann væri bara svona fullur.En hann hélt alltaf utan um mig og við stóðum hliðin á strák sem ég er GEGGT hrifin af og hann veit það alveg.

Hann horfði geggt á mig og þá leið mér soldið skringilega,en svo fórum við eitthvað burt,og hann var alltaf komin með hendina oní buxurnar mínar, og svo var allt eitthvað svo í móðu og áður en ég vissi þá var ég bara byrjuð að slumma hann á fullu.
þá voru allir “vó eruð þið saman” og við sögum aldrei neitt.
Svo hélt hann alltaf utan um mig og var eitthvað að knúsa mig og kyssa.
Síðan voru allir við hann “ertu hrifin af henni” og hann neitaði því ekkert.

Síðan vorum við komin aftur heim til vinkonu minnar og ég sagðist þurfa að fara heim og kyssti mig geðveikt lengi og bara alles.
En þá kemur allt í einu vinkona mín í geðveikri fýlu út og settist á einhverja tröppu þarna,og ég auðvita hugsaði bara, núna er hún í fýlu út í mig, en það var síðan ekkert útaf því.
en svo komst ég að því að hún er samt ógeðslega fúl út í mig.

Svo áðan var ég að labba heim eftir að hafa farið til annarar vinkonu minnar, þá sá ég hann,og það var það alveg greinilegt að það var búið að renna af honum.hann sagði eitthvað við hvort ég vildi fara eitthvað með honum og ég sagðist bara þurfa að drífa mig geðveikt heim.

Og núna sit ég við tölvuna á geðveikum bömmer,afþví að ég er kannski í sambandi við bróður vinkonu minnar,veit það ekki alveg, og vinkona mín er geggt fúl út í mig og ég veit ekkert hvað ég á að gera!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! !!!!!

smá útrás