Ég er í dálittlum vandræðum með kvennfólk. Staða mín er þannig að ég hef ekki stundað kynlíf í tæp fjögur ár. Ég er svasem ekkert að velta mér uppúr því en ég hef bara svo lítinn drifkraft í að reyna við stelpur. Ég hef heldur engann áhuga að fara að pikka upp fullar stelpur því að mér fynnst ég vera notfæra mér stöðuna þó eg viti að flest fólk fer á fillerí í þeim tilgangi að manna sig upp í að reyna fá drátt. Ég held að ég vilji líka meira en bara kynlíf þó er kynkvötinn stundumm alveg að fara með mig. Þegar eg tala við stelpur er ég oftast ég sjálfur og oft nenni ég ekki að reyna við þær af því að þá þarf ég alltaf að vera gefa eitthvað í skin og ég get ekki alveg verið rólegur eða ég sjálfur. Kvennfólk hefur lítið sem eingann áhuga á mér og þó lít eg bara nokkuð vel út. Kannski er ég bara ekki að hitta á réttu þræðina eða kannski er ég bara svona ósexy eða ósjarmerandi.
Mér er dáldið byrjað að líða eins og ég sé ekki lengur kynvera. Ef eitthver er með ráðleggingu þá væri það gott að fá þær.

p.s. Ég veit hversu aulalegt þetta er og ég þakka guði fyrir að einginn viti hver ég e