Sæl öll.
Ég var að dúlla mér með stelpu í byjun sumars (byjun maí) og var alveg rosalega ástfangin af henni.
Við kyntumst í gengnum sameiginlega vin sem fór svo á milli okkar,laug einhvjerju í hana sem skemdi allt þegar við vorum búin að vera saman í ca. 3 vikur. ÉG ákvað að svekkja mig ekki í þetta skiptið en ég hef oft látið sambönd fara illa með mig.
Ég fór bara inn í sumarið með það í huga að skemmta mér með vinum og láta stelpur eiga sig. Hún hringdi stundum í mig þegar hún var á fylleríi með vinkonum sínum sem var farið að vera svolítið pirrandi því ég gat þá ekki gleymt henni.
Svo núna um verslunarmannarhelgina hittumst við og vorum bæði vel í því. Við vorum saman allt kvöldið og vorum bara eins og par í raun, Ég svaf með henni í tjaldi og daginn eftir fekk ég far með henni í bæinn. Hún var voða skrítin alla leiðina, horði oft á mig eins og hún ætlaði að fara að segja eithvað en sagði aldrei neitt. Svo kvöddumst við, ég þorði ekki að kissa hana bless því ég var svo feiminn, og ég hef ekkert talað við hana síðan.
Mér fynst eins og hún hafi séð eftir því sem gerðist á milli okkar. Ég þori ekki að hringja eða senda henni sms, og ef ég geri það þá veit ég ekkert hvað ég á að segja. Var þetta bara “one night stand” eða var hún að gef eithvað í skin ?
Allavega er ég langt frá því að gleyma henni núna og get ekki hætt að hugsa um hana.
Er einhver með svipaði reynslu eða getur einfaldlega hjálpað mér ?

Kv. Ragon