sko… málið er þannig að ég er ógeðslega feimin… en ég meina, hefur maður einhverja ástæðu til þess? okey, ef það er sagt nei er það bara þannig og maður verður að taka því…. en samt er alltaf þessi litla rödd í hausnum á manni sem pælir í öll smáatriði… ef hann heldur að ég sé alldgjör lúser, hvað ef hann segir öllum…. og svo framvegis…. ég prófaði um helgina að reyna að lýta framhjá þessari rödd, og það gekk allveg ágætlega, nema hvað að ég hefði átt að vera lengur að tala við gaurinn, en nei, ég fór þangað sem ég var að gista…. ég sá það að það er í rauninni enginn ástæða til þess að vera feiminn, ég meina það eru fleiri fiskar í sjónum…. ;)

ef það eru einhverjir fleiri sem þjást af þessari feimni, þá mæli ég með að þið prófið fyrir ykkur að horfast í augun við heiminn… en bara að passa sig á því að gera sig ekki að fífli ;) vera bara þú sjálf(ur) og sjá hvort það gangi ekki bara vel… ;)

gl greenragga ;)