Ég er 14,alveg að verða 15 eftir nokkra daga,ára gömul stúlka. Þannig er mál með vexti að ég er í unglingavinnu og þar er strákur sem er svo sætur að ég er að deyja! Hann er sko flokkstjóri. Ég er yfir mig ástfangin af þessum strák og ég get ekki hætt að hugsa um hann eða horfa á hann. Vinkonur mínar vita þetta og þær finnst hann líka svolítið sætur. En mér finnst hann algjört æði! En svo er líka vandamál,hann er sko 19 ára,alveg að verða 20 og hann er vinur bróður míns!! Strákurinn(sem ég elska) hefur ekki búið hérna um hríð en hann er fluttur hingað aftur en þeir eru samt vinir og strákurinn sem ég er ástfangin af þekkir mig og segir oft hæ og þá liggur við að ég falli í yfirlið! Hvað get ég gert? Viljiði koma með svör fyrir mig og plíííís,ekki koma með einhver skítakomment,það er svo leiðinlegt að fá svoleiðis svör. Takk takk:-)