Okey ég veit ekki alveg hvernig ég á að byrja þessa grein….
En málið er að ég hitti strák fyrir 2 mánuðum ég hafði oft séð hann, hann er að æfa á sama stað og ég og hefur oft komið í vinnuna til mín rosalega sætur strákur og ég hef áhuga á honum!!!! en ég hitti hann á djamminu og við fórum saman heim ég veit að það voru mistök en samt ekki mér fannst það bara vera gaman….

Svo hitti ég hann í ræktinni fyrir svona 3 vikum síðan og hann biður mig um að gefa sér númerið mitt og við mundum horfa á vidó saman ok mér fannst það bara vera gaman að hann skuli sína mér áhuga og ég beið alla vikunna eftir að hann hringdi en aldrei gerði hann það ekki fyrr en á föstudagsnóttu kl 4 en ég svaraði honum ekki…. hvað er málið???

En ég hugsaði ekki meira út í þetta mér var alveg sama, svo núna um daginn þá hitti ég hann aftur í ræktinni og hann bíður mér heim í videó ég fór með honum það var bara fínt hann reyndi nú að fá að sofa hjá mér en ég stóð föst á mínu og gerði það ekki…. svo þegar ég var að fara þá segir hann við mig við verðum bara í bandi… og svo bara bless!!! hvernig á ég að túlka þetta er hann bara að leika sér ég veit ekki neitt ég var að vonast til að þið gætuð gefið mér smá ráð!
Takk fyri