Hæ hæ
ég er búin að vera hugsa mikið undanfarna daga um lífið og ástina og allt þar á milli!!!
Ég veit ekki enn hvort ég er í rétta sambandinu en ég elska hann mikið það eru bara svona hlutir sem ættu ekki að skipta neinu máli sem skipta mig mestu!!
Ég er kannski bara svo skrýtin..
Ég komst að því fyrir nokkrum vikum að ég ætti von á barni.
ég er hrædd
þetta var ekki planað, bara slys.
En ég ætla að eiga það
Ég veit að þetta barn kemur ekki í stað hins
Mér finnst ég líka vera hræsnari ef ég myndi eyða því
En það er ekki þess vegna sem ég ætla að eiga það
Þetta var stór ákvörðun
ég fór til læknis og var að spyrja út í hættuna á að sama myndi gerast
hann taldi að það væri litlar líkur á því
Nú er bara að þrauka fyrstu 3 mánuðina og síðan næstu 3 og vona að litla lífið vilji bíða
Kveðja
Kristel