Ég bara verð að tjá mig um ástina. Ég varð alvarlega ástfangin við fyrstu sýn fyrir 7 árum, ég var svo heppin að ástin var endurgoldin. Okkur fannst við þekkja hvort annað vorum sammála um flest höfðum lík áhugamál og næga virðingu hvort fyrir öðru til að “leyfa” hinu að hafa aðrar skoðanir.
Núna 7 árum seinna eru börnin 2 og ástin heitari, kynlífið betra og fjölbreyttara og samkomulagið frábært. Við erum bestu vinir hvors annars og samt vinnum við á sama staðnum.
Megi sem flestir hljóta slíkt hnoss.
með þessari grein sendi ég ástarkveðju til mannsins míns, en hann er fallegasti maður í heimi.
Kveðja séð með rósrauðum augum Mandla.