Hann var þessi strákur sem átti flottasta bílinn, hann var töff strákur sem allar stelpur vildu vera með eða það hélt ég. Ég hitti hann fyrst fyrir fjórtán mánuðum í innflutningspaty hjá honum. Á þessum 14 mánuðum vissi ég bara hver hann var og hvar hann bjó, við vorum engir vinir. En 28.nóvember breytist allt, þetta kvöld féll ég fyrir honum, var allt kvöldið með Telmu vinkonu minni, fórum á rúntinn með honum, svo seinna um kvöldið skutlaði hann henni heim og við vorum bara tvö ein saman á rúntinum. Hann bauð mér heim til sín, ég var smá smeik en ákvað að taka boði hans. Setist í sófan, hann kveikti á tónlist og nokkrum kertum, var voða sætur og bauð mér kókglas :), seinna lágum við saman í rúmmi hans eftir ólýsanlegar 3 klukkusrundur af frábæru kynlífi, við fórum ekki strax að sofa, við kúruðum bara og töluðum saman um allt og ekkert. Hann var ekkert eins og allir hinir, hann var æðislegur !! Ég vissi ekki hvort þetta hefði verið bara one night stand eða eikkað annað. Daginn eftir vildi hann ekki sleppa mér, mér leið frábærlega. Ég gisti hjá honum allan tíman sem ég var fyrir sunnan. Við meiri segja töluðum um samband, en það var samt voða erfit því hann var fyrir sunnan en ég fyrir vestan. Nú eru liðnir 2 dagar síðan ég fór frá honum, líður voðalega skringilega, er hrædd um að missann, hrædd um að þetta verði alveg eins og með Samma. En það verður bara að koma í ljós, ég verð að láta hann taka fyrsta skrefið, hann verður að hringja, senda sms.