Nú er það staðfest, ég gefst upp. Ég er hættur að leita mér að kærustu. Mismunurinn sem er á milli mín og vina minna út af því að ég er feitur er alveg til hábornar skammar. Eru þið stelpur ólæknanlegar, eða er ég byrjaður að bulla aftur. Er hægt að fá ykkur til að elska feitan mann. Er það möguleiki. Ég er búin að stúdera þetta og ef þið fáið ekki Vin Dieselana ykkar eða Brad Pitt, þá þarf hann í það minnsta ekki að vera mjór. Ég er alltaf að heyra stelpur að segja “já ég hef séð feitan strák með stelpu”. En eins og vanalega eiga kvenmenn til að ýkja, ef ekki ljúga bara hreint og beint. Ég hef verið að fylgjast með vinahópum í skólanum mínum og þar eru allar stelpurnar (feitu, mjóu, nördar) með strákum en það er svo sorglegt að ég sé oft stráka sem eru ekki Vin Diesel eða Brad Pitt look alike sem sitja þarna einir og yfirgefnir. Svo hef ég heyrt bara stelpur segja það beint út, feitir strákar eru ljótir ég myndi aldrei deita svoleiðis týpu. Margir vinir mínir hafa verið með feitum stelpum, an auðvitað er það bara sjálfsagður hlutur. Það eru fullt af stelpum sem eru í sambandi sem eru að gefa mér ráð sem ég hef farið eftir en þau virðast ekki virka “i just dont have the look”. Ég er óelskanlegur, og á ekki skilið stelpu. Þannig að þetta er opinber uppgjöf mín, ég ætla ekki að leyta að stelpu til að vera með.

Takk Fyrir

Gullbert