Ég varð bara að koma þessu einhvernveginn frá mér… En þetta lýsir því hvernig mér líður akkúrat núna :(

Ég er..

- Ég er stelpan sem er með þig á heilanum.

- Ég er stelpan sem fylgist alltaf með þér úr fjarlægð.

- Ég er stelpan sem kippist alltaf við þegar hún sér/heyrir
eitthvað sem minnir á þig.

- Ég er stelpan sem leyfði sér að verða allt, allt of hrifin af þér.

- Ég er stelpan sem þú sérð ekki.

- Ég er stelpan sem þú vilt ekki sjá.

- Ég er stelpan sem fær þunglyndisköst út af þér.

- Ég er stelpan sem getur ekki sofið út af þér.

- Ég er stelpan sem þú munt gleyma.

- Ég er stelpan sem sem mun aldrei gleyma þér.

- Ég er stelpan sem elskar þig og hatar á sama tíma.

- Ég er stelpan sem þú munt aldrei vita hver er.

:(