Sönn ást er ekkert sem gerist á einni viku,einum mánuði eða nokkrum mánuðum. Sönn ást er tilfining sem rennur dýpra en fiðringur í maganum, eða spenna eða tilhlökkun við að hitta hana.
Sönn ást ávinnst með tímanum, þetta er tilfining sem liggur dýpra en nokkur önnur tilfining.

Sönn ást er að finna að þetta er konan sem ég vil ganga í gegnum allar raunir lífsins með, af því lífið er og verður aldrei dans á rósum. Sönn ást er að þekkja hana og alla hennar kosti og galla, sönn ást er að vita að jafnvel þó hún myndi fá brjóstakrabbamein og missi bæði brjóstin,lendi í slysi og lamast eða lenda í slysi og afskræmast í andlitinu þá veit maður að ég vil ganga í gegnum allt í lífinu og styðja hana og halda í hendina á henni í gegnum lífsins erfiðustu raunir.

Sönn ást er að vera tilbúinn að leggja hvað sem er á sig til að tryggja öryggi og hamingju hennar og verðandi fjölskildu.
Sönn ást er ekki kynferðisleg, eða spennandi og verður aldrei eins og þegar maður verður hrifinn af einhverri, sönn ást er að sjá hana fyrir sér gamla og samt vilja vera við hlið hennar og tala við hana eða halda í hönd hennar.
Sönn ást er eiginlega bara að gera sér grein fyrir lífinu, að gera sér grein fyrir erfiðleikum lífsins og vita það að hvað sem bjátar á og hvað sem verður gott að vita það að þetta er konan sem ég vil ganga í gegnum lífið mér við hlið.Að þetta er konan sem ég vil að verði móðir barna minna,tengda dóttir móður minnar.
Sönn ást er að horfa á hana, sjá hana hamingju sama og ánægða og fyllast ánægju sjálfur.

Margir hérna munu sennilega aldrei upplifa sanna ást af því að þetta er bæði besta og versta tilfining sem mannskeppnan getur funndið, og margir eru ekki tilbúnir að leggja sjálfa sig í þá aðstöðu að upplifa þetta og sumir einfaldlega eru ófærir um það!