Hæ hæ ég er nú ekki vön að skrifa hérna inn en núna er ég í virkilegum vandræðum og þarf á hjálp að halda!
Þannig er að ég hætti í árs sambandi sem að var búið að vera hrikalegt og hef eiginlega ekki verið í sambandi síðan (einhver 2 svona mánaðarsambönd eftir það). Það er ár síðan að þessu “stóra sambandi” lauk og rúmlega 6 mán síðan að ég var síðast með strák. Nema það að ég hafði ekki farið lengi út að skemmta mér en í gærkvöldi hringdi vinkona mín í mig og dró mig í partý.
Nema hvað að ég hitti þarna strák sem að vakti hjá mér hvílíkan áhuga og bara virkilega heillaði mig og það er ekki búið að gera það í rúm 2 ár! Ég hef hitt marga stráka á þessum 2 árum síðan að ég hætti í þessu stóra sambandi (þótt að það hafi ekki verið mikið djamm síðastliðna mánuði) en enginn vakið neinn sérstakan áhuga hjá mér. Ef að þeir hafa verið sætir, þá hafa þeir verið svona týpa sem að heldur framhjá eða egóistar, eða eru þegar í sambandi(ég er ekkert hissa sko!) og ef að þeir voru skemmtilegir eða blíðir og góðir get ég ekki hugsað mér þá öðruvísi en bara vini útaf því að ég finn ekki fyrir svona löngun til þeirra þótt að ég reyni að gefa kost á því eins og ég get. Maður ræður þegar að öllu er á botnin hvolft ekki við tilfinningar sínar. Eða eitthvað þannig :D :S
Nema hvað að þessi strákur var bara draumur! Hann var skemmtilegur, gáfaður, skildi mig og bara ótrúlegt hvað við tengdumst mikið á þessum 6 tímum sem að við vorum að spjalla saman um daginn og veginn. Við gjörsamlega gleymdum tímanum! Ég get vel trúað því að við eigum vel saman en kemst auðvitað ekki að því nema að reyna að nálgast hann á einhvern hátt.
Og hérna kemur vandamálið. Hann var nýkomin úr sambandi og sagði mér það. Hann sagðist ekki ætla í samband aftur á næstu mánuðum (skil hann alveg) og hann er 10 árum eldri en ég!! :S
Hann gaf fyllilega í skyn að hann kynni við mig og allt það en að hann fynndist hann vera of gamall fyrir mig. Hann var bara ótrúlegur og mig langar voða til að þó að það sé ekki nema bara að fara eitthvað út með honum og bara kynnast smá þótt að það þýði ekki samband. Ætti ég að reyna að fá hann á stefnumót eða hvað á ég að gera :S

Ok ég vona að þetta sé ekki ruglingslegt hjá mér, var að skrifa þetta í flýti. Spyrjið bara ef að það er eitthvað torrskilið og ég svara :D En endilega öll góð ráð þegin…
takk takk