Það er nefnilega þannig að ég er alveg hrikalega ástfangin af strák sem er tvemur árum eldri en ég. Hann æfir með mér og ég hitti hann 5 sinnum í viku og svo 12 jan. förum við og hinir, til Hollands að keppa. Ég og vinkona mín erum einu stelpurnar sem æfa, með 8 strákum. Hann er mjög skemmtilegur og fyndinn og er alltaf að stríða mér og grínast, en ég þori ekki að tala neitt við hann því ég er svo feimin og veit ekkert hvað honum finnst um mig. Ég hef líka tekið eftir því að hann talar minna við mig því fleiri strákar eru á æfingu, en mikið ef við erum aðeins fá. Ég er aðeins búin að þekkja hann síðan í sept. en það er nógu langur tími til að gera mig brjálæðislega ástfangna af honum. Ég er því miður ekki góð í ástarmálum, hef aðeins einu sinni orðið ástfangin áður, en það kom í ljós að sá strákur var hommi. Hvað get ég gert, ég kann ekkert í þessum málum.