Ég hef séð að þið hafið verið að tala um stelpur sem hafa stolið kærustum. Hjá mér er það þannig að ég var á föstu með strák fyrr á þessu ári, sem var reyndar búinn að vera einn af mínum bestu vinum í nokkur ár áður en við fórum að vera saman. Í sumar slitnaðu uppúr en við vorum áfram vinir, svo vorum við farin að tala um að fara að reyna aftur því okkur fannst og ég hélt að það væri eins hjá okkur báðum að við bara þurftum að vera saman, ég hélt að það væri ást.

En svo allt í einu breyttist hann og fór að forðast mig og loksins gat hann sagt mér að hann væri farinn að vera með annari og að hann ætlaði að halda því áfram. Auðvitað brotnaði ég saman og við hættum að tala saman um stund eða þangað til hann byrjaði að hringja og koma í heimsókn og tala um okkur og hvað ég væri æðinsleg og falleg og skemmtileg og hann fékk mig meira að segja til að halda að þau væru hætt saman.

Jæja ann hélt áfram að hringja og ég var alveg viss um að þau væru hætt saman þangað til ég hitti þau saman.´Þá fannst mér nóg komið hvernig hann hafði látið gagnvart bæði mér og henni með því að þykjast vera hættur með henni. Ókei ég hætti að tala við hann, til þess að reyna að halda áfram og láta hann ekki vera að rugla svona í mér, það tók nú nógu mikið á að missa hann takk fyrir.

Jæja svo núna fyrir stuttu hittumst við á djamminu og hann var einn og sagðist verða að tala við mig og ég lét undan og ´þá byrjaði það aftur,hann elskar mig ennþá og lofaði öllu fögru umað hann myndi hætta með henni bara strax og ég trúði því. Og áður en ég vissi af var hann að kyssa mig þarna úti, það náði ekki lengra. Ekki fyrr en helgina eftir þá hittumst við aftur og hann var aftur einn og hann var ennþá á föstu, samt gat ég ekki staðist og fór með honum heim.

Núna eru þau ennþá saman og við ornir góðir vinir aftur sem sofa saman. Hann segist vera ennþá að leita að ástæðu til að hætta með henni. Þetta er ömulegt ég elska hann og bara get ekki staðist hann og ég er svo hrædd um að ég sé bara viðhald og að hann hætti aldrei með henni. Hvað á ég að gera?? :´( ég vil ekki sleppa honum.