Eins og þið vitið þá er 14.febrúar í dag og er valentínusardagurinn. Í morgunn skutlaði unnustinn mér í skólann og sagði við mig “heyrðu ég ætla bara heim að sofa, ég nenni ekki í skólann strax” og ég sagði við hann að hann hefði ekkert efni á því að skrópa, hann væri með lélega mætingu og þetta væri bara bensíneyðsla að fara heim og koma aftur, ég var ekkert sátt við hann. Svo kl.12:30. kemur hann og ég spyr hann hvort hann væri að mæta fyrst núna og hann sagði bara “já, og var bara mjög ánægður með það, hann var ekkert vanur að láta svona, hann er vanur að vera miklu viðkvæmari og hann væri alveg vís til að hætta við að fara heim að sofa miðað við hvað ég var fúl útí hann útaf mætingunni og það. EN bíðið, eftir skóla fórum við auðvitað heim og ég fer inn í herbergi og það er búið að taka til í herberginu mínu, STÓR blómvöndur á náttborðinu og ein rós á rúminu og búið að dreifa konfekti yfir rúmið.. ég var orðlaus.. hann var í allan morgun að undir búa þetta og hann sagði ”ég varð bara að sætta mig við það að hafa þig brjálaði út í mig í morgunn, en það var þess virði, því ég vildi gera þetta frekar því ég elska þig meira en allt og ég vildi gera eitthvað fyrir ástina mína"

ég verð bara segja það, ég held þetta sé besti unnusti í heimi…

kelly