Valentínusardagur 14.febrúar. Valentínusardagur er 14.febrúar eða á morgun og þótt að það þyki mörgum þessi dagur hallærislegur og amerískur eykst það með hverju árinu að fólk notfæri sér hann til að gleðja maka sinn.

Einfaldasta leiðinn til að gleðja makan er að fara á næstu Shellstöð og kaupa sérstök Valentínusarkort sem fást þar eða senda hreinlega tölvupóst. Þess má geta að í flestum þeim löndum sem halda þennan dag hátíðlegan snýst þetta mest um að senda kort og segja einhverjum að þér þyki vænt um hann og ég mæli með að allir sem hafa aðgang af tölvu sendi ástinni sinni að minnsta kosti sætt kort í tilefni dagsins, jafnvel þeir sem halda almennt ekki upp á daginn.

En Valentínusardagurinn er stórmerkilegur því um hann er nánast ekkert vitað. Margar kenningar eru þó uppi. Margir telja að Valentínus einhver hafi verið aflífaður 14. febrúar árið 270 og orðið nokkuð heilagur upp frá því. Einhverjir vilja meina að á þessum degi byrji fuglar að para sig og þaðan er kærustuparatengingi komin.
Samt hefur Valentínusardagur verið haldinn frá því á 14. öld. Fyrst í Evrópu að einhverju leyti en nú á dögum á Valentínusardagurinn flesta ástundendur í Bandaríkjunum. Ástæðan fyrir því er talin sú að visst tómarúm hafi skapast hjá kaupmönnum í Bandaríkjunum í byrjun febrúar. Jólin afstaðin og nokkuð langt í páskana svo þannig að best að skella inn svo sem einum kaupæðisdegi þarna á milli. Og viti menn, þetta svínvirkaði.


Nokkrar misflóknar hugmyndir af gjöfum fyrir þá sem eru í vandræðum og langar ekki að senda kort.

Bakaðu hjartalaga köku EÐA segðu makanum að þú sjáir um að elda, pantaðu pítsu og skerðu hana í hjarta áður en þú berð hana fram. Eða hreinlega eldaðu eitthvað gott, sérstaklega ef þú ert óvön/óvanur því.

Verslaðu smáauglýsingu í DV með ástarjátningu frá þér, passaðu þig svo bara að makinn sjái hana örugglega.

Að gefa eina rauða rós er týpisk gjöf en segir samt rosalega mikið, ef makin er kvk er flott að gefa bangsa með og ef makinn er kk getur verið flott að gefa töff nærbuxur. (fæstir strákar fíla að fá bangsa).

Morgunmatur í rúmið klikkar sjaldan, tala nú ekki um ef makinn hafði mikið fyrir því t.d vaknaði eldsnemma og fór í bakaríið, blóm með toppar það alveg.

Það getur verið gríðalega rómó að syngja ástarlag/ljóð fyrir makann og þótt að þú sért algjörlega laglaus þá færðu prik hjá þeim sem elskar þig fyrir að reyna. Tala nú ekki um ef þú samdir það sjálfur.

Flestar stelpur fíla allt sem tengist minningum, ef þú átt sæta mynd af ykkur saman verslaðu þá flottan ramma og gefðu henni. Skrifaðu fallegt ástarbréf með.

Verslaðu þér flott nærföt, farðu í þau, settu slaufu um hálsinn á þér, rauða rós í munninn og leggstu upp í rúm. Vertu með jarðaber, súkkulaði og rjóma við hendina og kallaðu á makan. Ef að þetta klikkar, þá er eitthvað að! (þessi hugmynd hentar stelpum trúlega frekar).

Endilega komið með fleiri hugmyndir, bara dagur til stefnu! ;)

Kv. EstHe
Kv. EstHer