Ég er orðin svo leið á að allir eru að skipta sér af mínum eigin einkalífi! Hverjum ég er hrifin af, afhverju ég gerði þetta svona en ekki hinsegin og að allir segja ÖLL mín leyndarmál!! Og að alltaf sé traðkað á mér!!
Ég þoli ekki þegar einhver er að gagrýna mig á hverjum degi alltaf! Chacha afhverju gerðiru þetta afhverju gerðuru ekki hitt. Chacha þá sást alveg greinilega að þú værir hrifin af honum því þú labbaðir ekki til hans!!! Það eru eginlega allir að reyna að breyta mér og tilfinningum mínum! ÉG BÓKSTAFLEGA HATA ÞAÐ!!! Að ég megi ekki hafa minn smekk því hann er rangur, að ég megi ekki hafa minn eigin tónlistar stíl því það er “píkupopp” allt sem ég geri er gagrýnt af getið hverjum vinkonum mínum Jíbbý!!! Ok það er 1 1/2 ár þangað til að ég fer í menntaskóla, oft og mörgum sinnum hugsa ég mig um hvort ég geti bara ekki átt neinar vinkonur þangað til? Ég gæti það alveg ég myndi bara einbeita mér meira að náminu. Auðvelt!

Ég er að meina hvað ef ég gerði þetta myndi ég nokkuð verða skrítin eða eitthvað??

thesa skrifaði grein um að vinkonurnar sínar væru alltaf að rífast. HALLÓ ég er önnur þeirra og ég segi bara hinni stelpunni mínar skoðannir því hún heldur að sínar séu alltaf réttar og auðvita endar það með rifrildum það er bara svona.

Svo er ég hræðilegá óþolinmóð ef eitthvað pirrar mig öskra ég á það (ef það er eldri en 12 ára)

Þurfti bara svona að tjá mig!