Jæja ég ætla að segja frá my x-boyfriend.
Við byrjuðum saman þannig að hann bað mig um að byrja með sér á ircinu (Já IRCINU… Við vorum reyndar búin að þekkjast í svolítinn tíma þá) og eins og asni sagði ég bara ok (enda frekar óvön athygli frá strákum) og við “byrjuðum saman”. Hann bjó svolítið langt í burtu frá mér en einn daginn þá kom hann í bæinn og var í nokkurn tíma. Hann vildi þá fara að hitta mig…
Og ég gerði það.
Ég verð að segja það… Hann er ljótasti strákur sem ég hef nokkurn tímann séð… En ég gaf honum nú samt smá séns. Ætlaði ekki að fara að hætta með honum bara af því að hann væri ljótur… Og heimskur :P
En svo kom vandamálið… Hann vildi endilega kyssa mig!! Og ég hafði því miður engan þannig áhuga á honum… En hann svona nokkurnveginn neyddi mig til að kyssa sig… Og vá… Djöfull kyssti hann ILLA!!! Hann var með tunguna alveg í öðru munnvikinu á mér þannig hann var í rauninni bara að slefa á kinnina á mér. Nice eða þannig… Svo í eitt skiptið þegar hann var að kyssa (eða reyndar slefa á) mig þá fann ég að eitthvað kom við magann á mér (þið getið ímyndað ykkur hvað það var)… Og hann varð dálítið vandræðalegur. Seinna sagði hann mér að þetta hafi verið í fyrsta skiptið sem hann fengi það við að kela!!!

Svo þegar ég fór að tala við hann… Þá komst ég að því að hann var helvíti leiðinlegur :P
Ekkert nema sjálfsvorkunn og þannig stuff…
Ég bara þoldi hann ekki. Svo ég bara dreif í því að segja honum upp.
Þá fór hann að væla í mér og sagði að hann hafði hugsað sér að eldast með mér og var alltaf að spurja hvort það væri öruggt að hann ætti aldrei aftur séns í mig og svoleiðis. Þegar ég var búin að segja nei nógu oft þannig að það síaðist í litla hausinn á honum byrjaði hann að segja að hann ætlaði að drepa sig…
Hann var sífellt að senda mér sms um að hann væri byrjaður að skera á púlsinn…
Ég var að verða brjáluð á honum!!
Ég fór bara að hunsa hann og þá hætti hann að senda mér sms og talaði ekki við mig fyrr en hann var kominn með nýja kærustu (djöfull var mér létt!!!)

Þetta er pottþétt það heimskulegasta sem ég hef nokkurntímann gert og ég mun aldrei gera þetta aftur!!!