Hæ öll! Það hefur verið langt síðan… ég er búinn að vera í pínku lægð núna upp á síðkastið vegna sumra svara sem ég fékk um daginn. En það er bara ég. Ég var ekkert að taka þetta inn á mig eða neitt… mér bara fannst kominn tími til þess að taka aðeins til í kollinum mínum. Mig langar til þess að þakka kærlega fyrir hlý orð í minn garð, og eins og ég hef sagt (kannski ekki nógu oft) þá þykir mér vænt um ykkur. Mér finnst fínt að geta komið hingað inn (bara sem ég, sem fáir sem enginn þekkir) og geta tappað af, það hefur hjálpað mér, og ég hef líka oft fengið góð ráð. En allavegana, þá hef ég litið á flest ykkur sem fjölskyldu, og það er góður fílíngur!
Það sem er að gerast hjá mér og fyrrverandi núna er það að ég er núna bara í svona “sit-back” steiti (state-of-mind). Ég er búinn að vera hugsa rosalega mikið um allt sem ég hef skrifað hér, bréfið sem ég sendi henni, og allt sem hún hefur sagt við mig. Málið er að hún er í einhverjum svona “haltu-mér-slepptu-mér” leik, og ég er bara ekkert að fíla það. Hún er kannski eitthvað niðurdregin, vill ekkert tala um það, ég fer, þá hringir hún, vill fá mig aftur, ég kem aftur, ekkert gerist, hefur ekkert að tala um. Skiljið þið þetta??? Ég nenni bara ekki að vera eitthvert fylliefni fyrir hennar líf. Hún er bara að taka mig geðveikt sem sjálfsagðan hlut og núna ætla ég bara að vera kaldur við hana í smá stund. Þetta er nokkurn veginn þannig að hún hefur eitthvað tak á mér (segjum bara band), svo þegar hún er einmanna, þá tosar hún í bandið þangað til að ég er kominn… og þá ber hún fyrir sig hendurnar! Ég ætla semsagt að leggja þetta bara í salt fram yfir áramót, ekkert að vera neitt leiðinlegur við hana, en ég er bara njóta egótrippsins sem ég er á núna. Það er kvennfólk að sýna mér áhuga… og mér finnst gaman að daðra og leika mér. Ég ætla bara aðeins að njóta þess að vera ég…
En svona að lokum þá vona ég að þið njótið góðra jóla, með þeim sem þið elskið… og hafið það sem allra best á nýju ári… Takk fyrir allt saman!
Ykkar
Gromit