Sælar stúlkur!
Nú er ég orðin hálf-fimmtug gömul, kelling í ykkar augum ábyggilega.
En ég var að lesa greinarnar eftir ykkur og ég sé það greinilega að þið eruð flýta ykkur svo mikið að verða stórar að mér finnst það hræðilegt, því að ég veit það að þegar að þið lítið til baka eftir kanski 5-10 ár þá eigið þið eftir að sjá eftir svo miklu.
Þannig að mig langar til að segja ykkur að róið ykkur aðeins niður og klárið þið að vera börn áður en þið farið í fullorðinspakkan.
Það er til dæmis ekkert eðlilegt við það að vera 12 ára og vera farin að stunda kynlíf á fullu, eða finnst ykkur það?

Allaveganna verið þið vissar um að þið vilja sofa hjá áður en þið gerið það og áður en þið hoppið upp í rúm hugsið þá um þetta get ég litið til baka eftir nokkur ár og sagt já ég svaf hjá honum með bros á vör eða ég svaf hjá honum OH my god hvað var ég að pæla!!

Stelpur ég bið ykkur HUGSIÐ MÁLIÐ!!

Ef þið viljið spyrja mig að einhverju sem þið viljið ekki að allir sjái þá er ég með netfangið vandamal@hotmail.com

Kær kveðja og farið þið vel með ykkur

Amelianna.