sælir elsku hugarar!!!
hvað gerðuði á bóndadaginn??
þessi dagur hjá mér var yndislegur og mig langar að deila honum með ykkur… Ok daginn áður bað ég kallinn minn að fá frí í vinnuni á föstudeginum útaf því að ég ætlaði að vera með honum og hann var svo yndislegur að hann fékk frí…=)
ég hitti hann þegar ég var búin í skólanum og við hittumst hjá vinkonu minni og fórum svo útí sjoppu og ég bauð honum “út að borða” pulsu og kók… (kommon ég er fátækur námsmaður=) svo fórum við heim til hans og hann var einn heima og við höfðum húsið fyrir okkur 2 og það var ógeðslega kósí. við vorum bara að kjafta um allt og ekkert og njóta þess að hafa hvort annað.
um kvöldið pöntuðum við svo pizzu og ekki löngu seinna fórum við inní rúm og ég gaf honum bóndadagsnuddið ekki orð meira um það…. en eftir fyrstu umferð þar fórum við að horfa á ice age þar sem við erum bæði með sick asnalegan húmor…. svo var bara önnur umferð uppí rúmi og svo vorum við bara að kúra og hafa það gott…
en hvað gerðuð þið??
ég veit þetta var kannski tilgangslaus grein en mig langaði bara að tjá mig smá=) PEACE OUT!!!!