Ég er núna síðustu 2 daga búin að vera í algerri ástarsorg!! Það byrjaði allt saman þannig að ég var alltaf að tala við strák, við skulum kalla hann x, hann hringdi í mig mörgum sinnum á dag, var alltaf að senda mér eitthver sæt sms, elti mig hvert sem ég fór og var alltaf að gefa í skyn að hann vildi bjóða mér út á date!! Málið var sem sagt það að hann að hann lét mig ekki í friði!!! Ég fílaði það samt í botn því hann er geðveikt fallegur og lítur alveg einsút og draumaprinsinn minn og svo er hann svo skemmtinlegur og góðyr og aldrei hafði mér dottið í hug að ég myndi nokkurntíma eiga séns í svona fallegan strák, og ég helt líka að ég ætti engan séns í hann en auðvitað hlaut það að vera fyrst hann ofsótti mig svona. ég var geðveikt hrifin af honum og ég gat ekki lært í skólanum út af honum. X var búinn að segja öllum að hann væri geðveikt mikið að pæla í mér og þá fór ég meira að trúa því að kannski væri það möguleiki….að….ég gæti fengið hann. Við fórum að tala oftar saman og af meiri alvöru eða þið skiljið og allt var að ganga svo vel þar til allt í einu….þetta var bara í gær….þá hætti hann að hringja í mig!!! Kannski finnst ykkur fáranlegt að ég geti ekki beðið í 1 og hálfan dag en hann var náttúrulega vanur að hringja 3 sinnum á dag og ég er svo hrædd um að allt í einu hafi hann misst allan áhugann á mér!!! Það eru náttúrulega til margar afsakanir fyrir því að hann hætti að hringja eins og td. að inneignin hanns er búin(það er sko alveg satt) eða þá heldur hann að ég hafi alls engann áhuga á honum því ég hringdi aldrei í hann og ég sendi honum aðeins nokkrum sinnum sms að fyrrabragði, útskýringin á því er sú að ég er svolítið feimin og hrædd og óörugg með sjálfa mig en kannski hefur þetta allt saman leitt til þess að ég hafi allt í einu flæmt hann burt með því að láta hann halda að ég hafi ekki áhuga!!1 En málið er að ég hef alveg klikkaðan áhuga á honum og ég má ekki við því að hann fari núna!!! Ég hætti ekki að hugsa um hann því við höfðum verið að tala saman í margar vikur og svo allt í einu….allt búið!!! :( Hvað haldið þið??? Er hann bara feiminn…heldur hann að ég hafi ekki áhuga…..hefur hann misst allan áhuga….eða hvað??? Plís viljið þið svara fljótt því ég er að deyja úr áhyggjum!!!

love /borgaze