Tíndu blóm á leiðinni heim úr vinnunni á sumrin og komdu elskunni þinni á óvart þegar að þú kemur heim.

Bjóddu henni út í náttúruna að sumarlagi með gott nesti og teppi. Farðu á einhvern skemmtilegan og rólegan stað þar sem að þið fáið að vera í friði.

Í staðinn fyrir að bjóða henni út að borða eftir vinnu, vertu tilbúin með góðan mat, fínt lagt á borð og kertaljós þegar að hún kemur heim eftir erfiðan vinnudag.

Gefðu henni gjafir sem að þú hefur gert sjálfur handa bara henni, vegna þess að hún er einstök.

Láttu renna í heitt og gott baðmeð allskyns baðolíum og fíneríi áður en að hún kemur þreytt heim eftir erfiðan vinnudag.

Á veturna getur verið mjög rómantískt að keyra út fyrir amstur borgarmarkanna að kvöldlagi og dást að stjörnunum og norðurljósunum í kyrrðinni.

Jæja, þetta voru nú bara nokkrar hugdettur hjá mér, vonandi að þær geti komið að gagni.

Góðar stundir, kv. Glaurung
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.