hæhæ…

fyrir 3 mánuðum síðan þá byrjaði ég með strák sem ég elska út af lífinu…það leiðinlega var að hann þurfti að vera frá í 2 mánuði…en kom heim um helgar! og þá hittumst við og vorum saman… þá voru vinkonur mínar mjög skilningsríkar og skilu alveg afhverju ég var alltaf með honum en ekki þeim þegar hann kom…og vona að þið skiljið það líka…ég sagði þeim að þetta myndi breytast þegar hann kæmi aftur og þá yrðum við meira saman um helgar…

núna eftir að hann er kominn heim og er búinn að vera heima í 1 mánuð…þá hef ég misst allt samband við vinkonur mínar…ég hringi í þær og fæ bara til baka “nei ég er að fara að gera þetta með stelpunum”… og mér aldrei boðið með…ég ákvað að bíða og sjá til hvað myndi verða úr þessu…en núna hef ég ekki heyrt í þeim í rúmlega viku…eða tvær…þær hringja ekki einu sinni og spurja hvað ég sé að gera…alltaf búnar að ákveða bara að ég sé með kærastanum…ég talaði um þetta við þær þá og fékk svar sem hljóðar svona:
“þú ert alltaf með honum og hringir ekkert meira í okkur heldur en við í þig…þú hringir þegar hann er að gera eitthvað annað og getur ekki verið með þér…(t.d. að læra), viljum ekki hringja ef þú ert með honum ef við erum að trufla þig…!” og svo sagði ein við mig um daginn…“þú ert bara alveg hætt að heilsa manni!!!”

þetta fer virkilega mikið í taugarnar á mér… það er alltaf eins og ég þurfi að gera allt af fyrra bragði!!! eins og að heilsa…þær heilsa mér ALDREI!!!

en svo finnst mér ég vera svolítið ein núna…kærastinn minn er búinn að fara núna 3 helgar í röð út með vinum sínum og ég er bara skilin eftir…beðin um að keyra eða eitthvað… það fer í taugarnar á mér…svo fór ég að gera mér vonir um að við myndum kannksi eitthvað gera saman og vera saman heila helgi…en neinei það er verið að fara að horfa á fótbolta og eitthvað solleiðis…og hann veit af þessu með vinkonurnar mínar…en samt skilur hann mig eina eftir…!!! ég vil ekki vera reið við hann því að ég elska þennan dreng út af lífinu og þykir mjög vænt um hann…og vil vera með honum það sem eftir er…

getur einhver sagt mér afhverju þetta er svona?
gerði ég eitthvað?
á ég bara að leyfa þessu að vera svona?

kv.

exotic

p.s. ef þið eruð að hugsa um aldur minn þá notaði ég aðra kennitölu…