Færðu henni konfekt og blómvönd á fyrsta stefnumótinu. Forðastu samt að borða konfektið áður en þú ert búinn að gefa henni þau. Sama á við um blómin.

Skrifaðu henni langt rómantískt ástarbréf. Vertu viss um að þú skrifar niður rétt nafn en ekki nafn þeirrar sem þú elskaðir síðast.

Bjóddu henni á rómantíska mynd. Rómantísk mynd inniheldur ekki Jim Carrey eða Sylvester Stallone.

Keyptu handa henni eitthvað sem lætur hana ilma vel. Þá er ekki verið að tala um svita sprey þótt hún þurfi þess eða ekki.

Kampavín eða freyðivín ætti að notast við sérstök tækifæri. Viský eða southern comfort er ekki talið kampavín þótt það komi ykkur í meira stuð. Ekki er heldur mælt með Bacardi.

Taktu sjónvarpið úr sambandi. Settu miða á sjónvarpið sem segir “Kveiktu á MÉR í staðinn.” Ef hann kveikir samt á sjónvarpinu, íhugaðu um að losa þig við áskriftina að stöð tvö.

Þegar hún er að ferðast ein, sjáðu til þess að flugfreyjan afhendi henni gjöf eða blóm frá þér þegar vélin er farin í loftið. Auka skammtur af hnetum telst ekki sem gjöf.

Tíndu blóm handa henni. Vertu þó viss um að þú þekkir muninn á blómum, illgresi, brenninetlum og fjarlægðu alla maura áður þú gefur henni blómin.

Bjóddu henni á fimm stjörnu veitingahús. Athugið: fimm stjörnu veitingahús hafa ekki myndir af matnum á matseðlinum.

Allir vilja A+ samband, aftur á móti eru B+ og C+ sambönd nokkuð vel góð og miklu ódýrari og fylgir þeim miklu minni tilfinningapakki og þú ert ekki eins uppstökkur þegar því lýkur.

Þú getur ekki haldið hrifningunni en þú getur viðhaldið ástríðunni. Þetta er venjulega gert með klámmyndböndum eða heimsóknir í swinger klúbba.

Feldu demantshring í köku eða hálsmenn. Mundu akkúrat hvar hringurinn er, því það að fá hringinn EFTIR meltingu er miklu minna rómantískt.

Ilmvatn og eða rakspíri er kjarni rómantíkurinnar. Án þeirra myndir þú aldrei vilja kyssa persónuna sem þú ert með ef þú vissir akkúrat hvernig þau lykta í raun og veru.

Bókaðu meiri tíma fyrir forleik. Bókaðu hann stöku sinnum með þeirri sem þú ert að deita.

Ekki elskast sama hátt í hvert sinn. Besta leiðin til að gera þetta er að elskast með öðru fólki. Eða æfa þig einn heima.

Vertu ekki að flýta þér að njóta ásta nema hann eða hún er leiðinleg og Sopranos er að byrja í sjónvarpinu.

Skrifaðu “Ég elska þig” á hverja blaðsíðu á ‘Post it’ blokk. Settu miðana á allt um allt húsið! Gerðu þetta eingöngu er þú býrð með þeirri sem þú elskar.

Settu miða á mismunandi heimilisvörur:
Joy uppþvottalögur: Every day with you is a joy.
Cheerios: Just knowing you love me cheers me up.
Old Spice rakspíri: You spice up my life.
Lemon Fresh: I'd like to get fresh with your lemons.
Forðastu að setja miða á klósettskálar eða eitthvað álíka óviðeigandi hluti

Ég elska þig. Sú ofnotaðasta setning sem við verðum aldrei þreytt á að heyra. Segðu það. Segðu það oft. Jafnel þótt þú MEINIR það ekki. Það virkar.

Sendu honum rós með miða sem á stendur ‘This bud´s for you.’ Gerðu hann ennþá ánægðari með því að kaupa sixpack af Budweiser. Hann mun njóta þessara Budweisera enn frekar.

Demantar eru bestu vinir konu. Hundar eru bestu vinir manns en hundar eru ódýrari. Keyptu handa henni hvolp svo að hún geti æft sig á sínu móðurlega eðli. Hún mun elska það og það mun spara þér pening. Auka bonus er að ef hún hættir með þér, þá man hún alltaf eftir þér út af hundinum og hún mun ekki losa sig við hann því að hún elskar hundinn. Hún situr uppi með minninguna um þig að eilífu!

Skerðu upphafsstafina hennar og þína á tré. Ef þú hættir með henni , höggðu niður tréð, bútaðu það niður í viðarbita og settu þá í tætara. Þér mun líða betur við það.

;)