Vandamálið mitt er það ég er að DEYJA úr ást af strák sem er jafngamall mér en í öðrum skóla. Hann er það besta sem ég veit og líka það fallegasta (hinn fullkomni strákur). En það er einn galli. Hann vill mig ekki. Ég er vinsæl, ekkert ljót og hef oft verið í sambandi og veit allt um ástina og allt það! Hann VAR með áhuga á mér en svo bara missti hann áhugann! Hann er ekki að spá í neinni annarri eða neitt þannig bara hann missti áhugann. Ég hef aldrei verið jafn hrifin af neinum. Svo er líka það að ég er sko EKKI feimin þegar ég þekki fólk en ég þekki hann ekkert mikið og við erum ekkert mikið í sambandi núna, en allavegana þá er ég svo SHIT feimin þegar ég sé hann ég fer bara í kerfi og allt. Það vita ALLIR að ég sé hrifin af honum og allir segja að við pössum vel saman. Sömu áhugamál og bara sæt saman…..

Hvað á ég að gera… ég veit ekkert hvað ég get gert og vantar hjálp

Vonandi kunniði eikker ráð =)

The Girl