Trivia hér á rokk hefur yfirleitt verið með frekar slappa
þáttöku en samt næga til að bera sig og vera keppni. Ég hef
alltaf ætlað að reyna að finna lausn hvernig hægt væri að
gera trivia áhugaverðari, þægilegri að svara og
skemmtilegri en aldrei fundið neitt betra en kerfið sem er.
Í seinustu trivia (sem Garsil sá um) brá mér þó heldur en
ekki í brún því enginn tók þátt í henni. Því tel ég
nauðsynlegt að leyta til ykkar kæru hugarar. Ef þið hafið
einhverjar lausnir fyrir mig eða hugmyndir eða einhverjar
skoðanir á trivia, hvað sem er, sendið það til mín í
skilaboðum svo trivia geti haldið áfram og verið meiri og
betri skemmtun í framtíðinni.

Allir tillögur og öll komment vel þegin.
Og ekki spara skilboðin, þau kosta ekkert.

kv.
Tannbursti
<a href="http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=Tannbursti&syna=msg“>skilaboð</a> | <a href=”mailto:mattia@islandia.is?subject=Um%20Rokk%20Trivia">e-mail</a>
(ef þið eruð ekki skráð á huga megið þið senda mér e-mail)