Nýtt myndband 16.10.2006 Nýtt myndbandið komið inn. Að þessu sinni er það hin goðsagnakennda sveit Twisted Sister með eitt besta tónlistarmyndband allra tíma, I wanna rock.

Dee Snider er auðvitað einn myndarlegasti maður seinni ára og myndbandagerð 9. áratugarins er snilld sem seint verður toppuð. Þeir sem hafa brennandi áhuga á Twisted Sister ættu líka að tjekka á þessu myndbandi af sömu plötu, Stay Hungry, við lagið We're not Gonna Take it: http://www.youtube.com/watch?v=GABUDv_64Ho

Svo má heldur ekki gleyma þessari rosalegu samvinnu Twisted Sister og þeirra helsta áhrifavalds, Alice Cooper. Twisted Sister feat. Alice Cooper - Be Cruel to Your School: http://www.youtube.com/watch?v=urCzheuxJn0
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _