Unicef Uppreisnin! Ungmennaráð Unicef stendur þessa dagana bakvið verkefni sem ber heitið Unicef uppreisnin. Ráðið ákváð að hafa samband við nemendafélög menntaskóla landsins og nýta sér kraftinn sem í þeim býr. Nemendafélög Kvennó, MH og MR svöruðu kallinu og hafa staðið í ströngu síðustu vikur við skipulagningu stórtónleika á Nasa.


Hjálmar

Hjaltalín

Sprengjuhöllin

Rökkurró

Mammút

Retron

..auk þess sem ungt fólk á vegum nemendafélagana mun kynna Unicef samtökin.

Herlegheitin verða 2. apríl næstkomandi á Nasa við Austurvöll og hefjast stundvíslega kl 20:00. Forsala aðgöngumiða verður á midi.is og í menntaskólunum þremur á aðeins 1500kr en einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn á 2000 kr.

Við hvetjum auðvitað alla til að mæta, njóta frábærrar tónlistar og styrkja gott málefni.
- garsil