Já, þá er komið að því!

<b>Ókind</b> er búin að hanga í æfingahúsnæði sínu í alltof langan tíma, þeir eru að spila í Norðurkjallara M.H. þann 25. október 2002. Húsið opnar klukkan 20:00 og rokkið byrjar á hljómsveitinni <b>Oblivious</b> sem mun framreiða rokkið þar til að instrumental gleðirokkbandið <b>Isidor</b> stígur á svið og rokkar lýðinn til Öræfasveitar. Síðastir verða síðan <b>Ókind</b> sem munu spila efni af væntanlegri plötu sveitarinnar en þeir munu loka kvöldinu og skilja fólk eftir í örvinglun eftir rokk&ról kvöldsins.

<b>Ókind+Isidor+Oblivious í Norðurkjallara MH
kl: 20:00
FÖSTUDAGINN 25. október</