Jæja ágætu jazzgeggjarar, þetta gengur frekar hægt og ég hef ekki
enn fengið svar frá vefstjora. Svo get ég ekki endursent bréfið
mitt í annað sinn vegna þess að það er búið að taka póstinn af
huga.

Þess vegna hvet ég alla til að senda vefstjora skilaboð
og biðja hann um jazzáhugamál. Ég skal gera mitt besta og býð mig fram til að vera Admin á áhugamálinu. Kemst þótt hægt fari (eða
vonum það allavegana). Mér finnst svolítið skrýtið að vefstjori
sé ekki búinn að svara og lýsi hér óánægju minni yfir því.
Ekki er enn öll von úti og vonum þess vegna að hann svari sem fyrst.

Lifi Jazzinn
Barrett

PS Ef þið vitið hvar Jómfrúartorgið er hjá Lækjartorginu þá eru þar tónleikar á laugardögum þegar það er gott veður kl 2 eða 4.
Jómfrúartorgið er fyrir aftan danska smörrebrödsstaden Jómfrúna
á Lækjargötu