Veit einhver hvaða lag heitir með RHCP sem ég hef heyrt einu sinni eða 2svar á Radio-X, ég hlusta ekki það mikið á útvarp þannig að ég næ aldrei nafninu á því.

Það byrjar allaveganna á svona kassagítar og fyrir þá sem vita eitthvað um gítarhljóma þá pikkaði ég það upp þannig að maður byrjar bara á E og færir það grip upp hálsinn án þess að gera þvergrip. Svo kemur svona nokkurs konar viðlag sem er G - D - C. Þetta er kannski ekki rétt tóntegund hjá mér en svona get ég allaveganna nokkurn vegin spilað það.

Til að gera langt mál stutt þá er þetta allaveganna bara lag sem er verið að spila núna á Radio-X með RHCP! :)