Það væri gaman að heyra hver er síðasti diskurinn sem þið keyptuð eða síðasti góði diskurinn sem þið keyptuð kæru Huglingar… bara svona góð leið til að kynnast nýrri tónlist!!!

Síðasti diskurinn sem ég keypti var “Goat” með hljómsveitinni Jesus Lizard, ég er alltaf að heyra um þessa hljómsveit og þá í tengslum við Nirvana og bara grunge almennt og ákvað að skella mér á einn disk og ég varð ekki fyrir vonbrigðum… tekinn upp af meistara Steve Albini og hljómar svo “cool” að ég fæ gæsahúð!!

Mæli með þessum disk við alla sem fíla hrátt rokk…

Kveðja! Lassie