Ný plata hljómsveitarinnar Diktu er komin út, eftir fjögurra ára bið. Á plötunni Get It Together má m.a. finna lögin Let Go og Just Getting Started. Platan var hljóðrituð sumarið 2009 af sveitinni sjálfri en til að reka smiðshöggið fékk hljómsveitin til liðs við sig sænska upptökustjórann Jens Bogren (Opeth) til að hljóðblanda verkið. Síðasta plata hljómsveitarinnar Hunting For Happiness kom út árið 2005 og hlaut frábæra dóma hlustenda og gagnrýnenda, m.a. 5/5 í Mbl. og var valin ein af 100 bestu plötum Íslandssögunnar.

www.facebook.com/dikta

www.myspace.com/dikta