Eru ekki einhver söngvari hérna sem hefur áhuga á því að syngja í Rock bandi með pung, eða hvað sem maður ætti svo sem að kalla þetta. Bara old school gaman rock. Ekkert nýtt, ekkert verið að reyna að finna upp hjólið, ekkert framúrstefnulegt. Bara keyrsla, þétt og stuð, tónlist sem fær fólk til þess að dilla sér, gaura til að langa í bjór og konur til þessa að klæða sig úr og bera brjóstin.

Við erum ss fjórir gaurar á aldrinum 23-28. Tveir gítarar, bassi og trommur. Það vantar bara söngvarann til að þetta fari að rúlla.

Viðkomandi þarf að vera fjall myndalegur og hafa það mikinn kynþokka að allar stelpur innan fimm metra verði samstundis óléttar. Hann má bara ganga í þröngum galla buxum og þarf að eiga amk tvær hvítar skirtur(nei ekki í alvörunni).

Við erum á höfðuborgarsvæðinu og erum með æfingarhúsnæði uppi á höfða.

Þá er bara spurningin, er einhver game?

Svona bara til gamans ætla ég að henda inn nokkrum videoum til að sýna nokkurn veginn hvaða við erum að hugsa um, en ekki taka þessu sem algjöri staðfestu:

http://www.youtube.com/watch?v=4zOF1T6nXvQ
http://www.youtube.com/watch?v=GdDxz2bkfhE&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=-sDi0lpMg_A&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=eaVlvr7UGvg&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=vuuxGvRTvSw


Bara pósta hérna fyrir neðan eða skjóta á mig hugskeyti ef þið hafið áhuga.