man einhver eftir hljómsveitinni din pedals? það er hljómsveit sem gaf út plötu '98, sem var bara nokkuð góð. kanski man einhver smellunum ashtray (sem var um tíma það vinsælasta á X-inu sáluga) og waterfall. þeir voru stimplaðir sem radiohead-eftirhemur, rétt eins og hljómsveitin muse einu og hálfu ári seinna, sem er nú mikið þekktari. söngvarinn hljómaði eins og illi tvíburabróðir thom yorke…. veit einhver hvað varð um þessa stórfínu hljómsveit?