Rokksveitin noise heldur í tónleikaferðalag til Bretlands á laugardaginn. Alls verður spilað á fimm stöðum þar í landi. Fyrstu tónleikarnir verða á laugardagskvöldið á “The Hallcross” í Doncaster. Þaðan halda þeir til Grimsby, Kingston, Camden og Mexborough. Af því tilefni ætla noise að halda styrktartónleika á Dillon við Laugaveg í morgun, föstudag 7.nóv. kl.22. Noise munu frumflytja efni af væntanlegri plötu, sem kemur út snemma á næsta ári. Aðgangseyrir er einungis 500kr.