Þó svo þetta eigi kannski ekki alveg við undir “Íslenskt Rokk” þá ætla ég samt sem áður að pósta þessu hér.

Ég vil fá nýtt áhugamál á Huga fyrir emo/goth/whatevs.

Ég hef svosem ekkert á móti, til dæmis, myndunum sem er verið að pósta hægri vinstri á /rokk, /metall, /pönk, og hingað og þangað - en það fer hins vegar all-svakalega í mig hvað allir þurfa að vera að væla yfir því að þessu sé póstað á hin og þessi áhugamál.

Öðru hvoru detta reyndar inn algerir gullmolar sem ættu helst heima á svona “the very best internet quotes” síðum, en oftast er þetta annað hvort “ojjjjj emo, afhverju er þetta drasl hérna?” eða eitthvað random skítkast út í fólk.

Og ég endurtek : random skítkast út í fólk.

Bæjó - Trommarafíflið í Irony of Apathy.

Bætt við 12. júní 2008 - 18:58
Fjárinn, sat og sat við tölvuna að reyna að muna það síðasta sem ég ætlaði að skrifa. En það var akkúrat það sem hér á eftir fylgir.

Mér finnst að allir sem annaðhvort vilja einlæglega fá þetta áhugamál stofnað, og þeir sem tilheyra þeim hópi manna (og/eða kvenna) sem hefur verið með væl eða skítköst, að hafa samband við VEFSTJÓRA!

Ekkert vera að spamma greyið gæjann, bara sýna honum fram á þá staðreynd að það er fullt af fólki sem er sammála um það að slíkt áhugamál eigi rétt á sér.

Bæjó aftur - Trommarafíflið í IoA.